Erlent

Kengfullur elgur hræðir skólabörn

Elgur á beit.
Elgur á beit. MYND/Eggert Jóhannesson

Stæðilegur elgstarfur hefur undanfarið hrætt skólabörn með árásargirni og sænska smábænum Mölndal. Elgurinn er talinn laðast að skólagarðinum vegna sætangandi gerjaðra epla sem liggja þar á flötinni. Ef hann fer ekki að sofa úr sér segja skólayfirvöld að þrautalendingin geti orðið að skjóta hann.

Sænska dagblaðið Gautaborgarpósturinn lýsir þessari ölvunarfíkn elgsins og segir þar að á föstudaginn hafi elgurinn hindrað nemendur í að komast inn í skólann. Kennararnir þurftu þá að fara út til móts við elginn og fylgja nemendum inn í húsið.

Í gær var elgurinn orðinn svo árásargjarn að skólastjórinn hringdi á lögregluna. "Það er ekki óalgengt að sjá ölvaða elgi að hausti til. Fullorðinn elgtarfur getur étið mikið magn af gerjuðum eplum og hreinlega orðið blindfullur," segir Jan Caiman, lögreglustjóri.

Hann segir að elginn verði að skjóta ef ekki linni ölvuninni. Lögreglan vonar þó að komandi vetrarnætur kæli aðeins blóðheitan elginn, þannig að börnin geti komist í skólann á ný.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×