Uppgjörið: Keflavík - Hamar/Þór 82-77 | Keflvíkingar í bikarúrslit Andri Már Eggertsson skrifar 4. febrúar 2026 19:45 VÍSIR/VILHELM Keflvíkingar tryggðu sér farseðilinn í úrslit VÍS-bikarsins eftir fimm stiga sigur á Hamar/Þór. Leikurinn var jafn og spennandi alveg til enda en Keflavík vann að lokum 82-77. Leikurinn fór fjörlega af stað. Keflvíkingar gerðu fyrstu tvær körfurnar en Hamar/Þór svaraði með átta stigum í röð. Það var einungis lognið á undan storminum því stelpurnar léku frábærlega og komst mest tíu stigum yfir 10-20. Skömmu áður hafði Hörður Axel Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur, tekið leikhlé. Hamar/Þór var fimm stigum yfir eftir fyrsta leikhluta 17-22. Keflvíkingar byrjuðu annan leikhluta betur og komust þremur stigum yfir 34-31. Hamar/Þór lét það ekki slá sig út af laginu og enduðu á að gera síðustu fimm stig fyrri hálfleiks og voru yfir 36-38 í hálfleik. Keflvíkingar voru í vandræðum með Ana Clara Paz og Jovana Markovic sem gerðu samanlagt 26 stig af 38 stigum liðsins. Hamar/Þór byrjaði síðari hálfleik betur og komst fjórum stigum yfir. Með bakið upp við vegg fóru Keflvíkingar að hitta úr þriggja stiga skotunum sem þær höfðu farið afar illa með framan af leik. Eftir níu stig í röð tók Hákon Hjartarson, þjálfari Hamars/Þórs leikhlé. Keflvíkingar voru sex stigum yfir þegar haldið var í síðasta fjórðung. Keflvíkingar tóku frumkvæðið í fjórða leikhluta og gerðu fyrstu sjö stigin sem kom liðinu þrettán stigum yfir 68-55. Hákon tók þá leikhlé og eftir það var allt annað að sjá til Hamars/Þórs sem gafst ekki upp. Þrátt fyrir hetjulega baráttu vann Keflavík fimm stiga sigur 82-77. Atvik leiksins Byrjun Keflvíkinga í fjórða leikhluta þar sem liðið gerði sjö stig í röð og komst þrettán stigum yfir gerði útslagið. Það fór mikil orka í að saxa forskot Keflavíkur niður og að lokum höfðu Keflvíkingar betur. Stjörnur og skúrkar Keishana Washington, leikmaður Keflavíkur, var einni stoðsendingu frá þrefaldri tvennu. Hún gerði 21 stig, tók 10 fráköst og gaf 9 stoðsendingar. Sara Rún Hinriksdóttir var einnig öflug í liði Keflavíkur með 17 stig og 8 fráköst. Það er erfitt að taka leikmann út í liði Hamars/Þórs þar sem liðið átti mjög góðan leik gegn verðugum andstæðingi með mikla sögu. Vítanýting liðsins var hinsvegar aðeins 72 prósent og verandi lakari andstæðingurinn á blaði fyrir leik hefði hún átt að vera betri til þess að liðið kæmist í bikarúrslit. Dómararnir Dómarar leiksins voru þeir Gunnlaugur Briem, Birgir Örn Hjörvarsson og Sigurbaldur Frímannsson. Leikurinn var vel dæmdur og það var ekkert út á þá að setja. Þeir kíktu nokkrum sinnum í skjáinn til þess að staðfesta hvort um var að ræða tveggja eða þriggja stiga körfu sem var gott og blessað. Stemning og umgjörð Það er alltaf vel mætt þegar leikið er í undanúrslitum VÍS-bikarsins. Miðað við krefjandi leiktíma var góð mæting hjá báðum liðum sem létu vel í sér heyra. Umgjörðin í Smáranum var til fyrirmyndar og Kópavogsbúar eiga hrós skilið fyrir að hafa tekið að sér að halda þessa bikark viku. „Fórum að efast um eigið ágæti“ Hákon Hjartarson þjálfari Hamars/Þórs, var svekktur eftir leikVísir/Anton Brink Hákon Hjartarson, þjálfari Hamars/Þórs, var svekktur eftir að hafa dottið úr leik í undanúrslitum VÍS-bikarsins. „Við tókum einn kafla þar sem við vorum linar sem er ekki hægt gegn Keflavík. Við vorum hægar og við fórum að efast um eigið ágæti,“ sagði Hákon í viðtali eftir leik og bætti við að þetta hafi verið auðvelt fyrir Keflavík á köflum. Aðspurður út í fyrri hálfleik þar sem Hamar/Þór var tveimur stigum yfir í hálfleik var Hákon nokkuð sáttur. „Þetta var fínn fyrri hálfleikur og þetta var fínn leikur fyrir utan sex mínútur í þriðja leikhluta þar sem við misstum þetta frá okkur.“ Hákon var svekktur með byrjun liðsins í fjórða leikhluta þar sem þær lentu þrettán stigum undir. „Við megum ekki falla frá þeim og við vitum það. Þær voru að komast auðveldlega inn í teiginn. Ég ætla ekki að taka neitt af Keflavík, þær eru ógeðslega góðar og eru með sjö eða átta íslenska leikmenn sem eiga landsleiki og svo þrjá útlendinga. Þetta er hörkulið og vel þjálfað,“ sagði Hákon að lokum. Bónus-deild kvenna Keflavík ÍF Hamar Þór Þorlákshöfn
Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti
Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 107-110 | Stjarnan í úrslit eftir háspennu í framlengdum leik Körfubolti
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti
Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 107-110 | Stjarnan í úrslit eftir háspennu í framlengdum leik Körfubolti