Erlent

Royal með jafnan stuðning á við Sarkozy

Ségolène Royal er þingmaður Sósíalistaflokksins og líklegasti forsetaframbjóðandi flokksins fyrir næsta vor.
Ségolène Royal er þingmaður Sósíalistaflokksins og líklegasti forsetaframbjóðandi flokksins fyrir næsta vor. MYND/AP

Ségolène Royal er óskabarn franska Sósíalistaflokksins og ný könnun sem gerð var fyrir franska dagblaðið Le Figaro sýnir jafnan stuðning við hana og Nicholas Sarkozy, sitjandi innanríkisráðherra Frakklands, í fyrstu umferð forsetakosninga, bæði hlytu 34% atkvæða ef kosið væri núna.

Royal stendur þar í stað en fylgi Sarkozys lækkar um 2 prósentustig frá því í síðasta mánuði. Öfgahægrimaðurinn Jean-Marie Le Pen fær ekki nema 14% fylgi, sem er mörgum Frökkum til hugarhægðar, þar sem brautargengi hans í forsetakosningunum 2002 vakti mikla ólgu í þjóðfélaginu.

Önnur könnun sem gerð var fyrir blaðið Libération sýnir að hún hefur mun meiri stuðning almennings til að verða fulltrúi Sósíalistaflokksins en keppinautar hennar tveir sem einnig vilja verða fulltrúar flokksins. Þar hefur hún helming atkvæða þeirra sem afstöðu taka en Dominique Strauss-Kahn og Laurent Fabius skipta hinum 50 prósentunum á milli sín.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×