Erlent

Leggja til hlé á aðildarviðræðum Tyrkja við ESB

Forsætisráðherra Spánar, José Luis Zapatero t.v., er nú í opinberri heimsókn í Tyrklandi og hitti þar starfsbróður sinn, Recep Tayyip Erdogan t.h.
Forsætisráðherra Spánar, José Luis Zapatero t.v., er nú í opinberri heimsókn í Tyrklandi og hitti þar starfsbróður sinn, Recep Tayyip Erdogan t.h. MYND/AP

Fulltrúar Austurríkis lögðu til í dag að hlé yrði gert á aðildarviðræðum Tyrklands við Evrópusambandið ef ekkert hefði þokast í rétta átt í deilu Tyrkja og Kýpverja fyrir leiðtogafund Evrópusambandsins í desember. Austurríkismenn hafa verið mestir efasemdarmenn um viðræðurnar við Tyrkland.

"Ef ekkert meiriháttar framfararskref verður stigið fyrir desember, þá gæti verið skynsamlegt að samþykkja hlé til þess að draga úr spennu," sagði Ursula Plassnik, utanríkisráðherra Austurríkis í dag. Hún tiltók ekki hversu lengi þetta hlé ætti að endast.

Evrópuráðið ákvað í síðustu viku að gefa Tyrklandi frest fram í miðjan desember til þess að opna hafnir sínar fyrir kýpverskum skipum eða sjá fram á tafir og truflanir á aðildarviðræðunum sem hafa staðið í 13 mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×