Erlent

Barnabörnin í DNA-próf áður en erfðaskráin er rituð

Allt er þetta bara spurning um kjarnsýrurnar í frumunum, eða hvað?
Allt er þetta bara spurning um kjarnsýrurnar í frumunum, eða hvað? MYND/Getty

Það færist nú vöxt í Noregi að afar og ömmur láti barnabörn sín gangast undir DNA próf til að ganga úr skugga um að þau séu rétt feðruð, áður en kemur til ritunar erfðaskrár. Þetta á einkum við vel stætt fólk.

Einnig færist í vöxt að systkini láti ganga úr skugga um faðernið, vegna erfðamála og loks eru launbörn farin að krefjast þess að meintir feður gangist undir DNA próf, svo þau viti hvort þau eigi kröfu til arfs, þegar þar að kemur.

Þessi hryna DNA prófa hefur, eins og nærri má geta, valdið titringi í mörgum fjölskyldum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×