Erlent

Kókaín í Kristjánsborg, þinghúsi Dana

Kókaínleifar fundust á þremur salernum danskra þingmanna í Kristjánsborgarhöll, þegar danska dagblaðið BT gerði þar athugun á 30 salernum nýverið. Prófin voru gerð með sömu tækni og aðferðum og lögreglan notar.

Staðfestir talsmaður lögreglunnar að ef niðurstöður hafi sýnt að um kókaínleifar hafi verið að ræða, þá leiki engin vafi á því að kókaín hafi verið haft um hönd á salernunum. Talsmaður þingsins segist vera sleginn yfir fregninni og að málið verði tekið upp á viðeigandi vettvangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×