Erlent

Egeland fundar með leiðtoga Frelsishers Drottins

Jan Egeland, yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum.
Jan Egeland, yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum. MYND/AP

Jan Egeland, yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum, flaug í gær til fundar við Joseph Kony, leiðtoga Frelsishers Drottins sem nú hefst við í Súdan, til að reyna að semja um lausn kvenna og barna sem hreyfingin heldur föngnum. Viðræðurnar báru lítinn árangur þar sem Kony sagðist ekki halda neinum föngum.

Egeland sagði fundinn samt ekki hafa verið til einskis því að Kony hafi samþykkt að eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna grennsluðust fyrir í búðum Frelsishersins til þess að sjá hvort þar leyndust fangar. Egeland er fyrsti háttsetti erindreki Sameinuðu þjóðanna sem fær að hitta Kony, sem vill nær enga fjölmiðlaathygli, af ótta við að hann verði sendur til Haag til að svara fyrir stríðsglæpi sem hann er sakaður um.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×