Erlent

Selst talsvert af ódýrara húsnæði

Og húsin mjakast upp.
Og húsin mjakast upp. MYND/Gunnar V. Andrésson

Húsnæðisverð heldur áfram að hækka og á einum mánuði hefur það hækkað um núll komma sjö prósent. Það er mikil hækkun ef litið er til þess að að á síðustu sex mánuðum nemur hækkunin innan við 3%.

Veltan á markaðnum hefur heldur aukist, en athygli vekur að meðalupphæð á hverjum samningi í síðustu viku var rúmar 17 milljónir á móti 19,5 milljónum í vikunni þar á undan, sem gefur vísbendingu um að mesta hreyfingin sé á ódýrustu eignunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×