Erlent

Bolton næstur til að fara

Búist er við því að sá næsti sem missi vinnuna eftir kosningasigur demókrata í Bandaríkjunum, verði John Bolton, sendiherra Bandaríkjanna gagnvart Sameinuðu þjóðunum. Ríkisstjórn Bush vill halda Bolton í embættinu en til þess þarf öldungadeildin að samþykkja tilnefningu hans og eru litlar líkur á því, eftir því sem BBC hefur eftir nokkrum öldungadeildarþingmönnum.

Bolton var settur inn í embætti meðan þingið var í sumarfríi í ágúst 2005 sem gerði það að verkum að hann þurfti ekki samþykki öldungadeildarinnar fyrr en við lok þessa árs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×