Erlent

Búist við fjölmennum minningargöngum í Palestínu í dag

MYND/AP

Hundruð Palestínumanna gengu í gegnum borgina Hebron á palestínska sjálfsstjórnarsvæðinu á vesturbakka Jórdanar í gær til að mótmæla árásum Ísraela á sofandi borgara í bænum Beit Hanoun í gærmorgun, þar sem 18 manns létust. Þeir brenndu ísraelska fánann og hrópuðu slagorð gegn Ísraelsríki.

Þrátt fyrir mikla reiði héldu leiðtogar Hamas og Fatah áfram viðræðum sínum í gærkvöld um myndun samsteypustjórnar fylkinganna. Síðar um kvöldið fóru þeir saman á sjúkrahúsið í Beit Hanoun og gáfu blóð til hjálpar hinum slösuðu. Þá lýstu þeir yfir þriggja daga þjóðarsorg á Vesturbakkanum og Gaza.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×