Erlent

Hænuskóli í Hyderabad í Pakistan

Lærdómsfús hæna.
Lærdómsfús hæna. MYND/Haraldur Jónasson

Pakistanskir embættismenn fundu bara kjúklinga í grunnskóla í borginni Hyderabad en engin börn. Draugaskólar svokallaðir eru algengt vandamál í Pakistan, þar sem fólk segist reka grunnskóla til þess að fá fjárstyrk frá ríkinu en stundar í raun einhverja gróðavænlegri starfsemi. Samkvæmt yfirliti fræðsluráðs borgarinnar voru 59 börn skráð í skólann.

Nokkrir verkamenn sem yfirheyrðir voru eftir húsleitina sögðu að þarna hefði verið kjúklingabú síðustu 12 árin. Að sögn borgarstjórans í Hyderabad fann lögreglan "hænur, sjónvarpstæki, myndbandstæki, spil inni í því sem hefðu átt að vera skólastofur, - en enga nemendur."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×