Engin tímaáætlun nefnd 8. maí 2006 18:45
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, svaraði mótstöðumönnum sínum fullum hálsi á blaðamannafundi í Downingstræti 10 í dag. Þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir ætlar hann ekki að svara því hvenær hann lætur af embætti. Eftir að Verkamannaflokkurinn galt afhroð í ensku sveitarstjórnarkosningunum í síðustu viku hefur vinstri armur þingflokksins sótt hart að forsætisráðherranum Tony Blair. Þingmennirnir krefjast þess að hann greini opinberlega frá því hvenær hann hyggist standa upp fyrir Gordon Brown fjármálaráðherra og helst sem allra fyrst. Í dag hélt forsætisráðherrann sinn fyrsta blaðamannafund frá því fyrir kosningar. Blair rifjaði upp að fyrir þingkosningarnar í fyrra hefði hann lýst því yfir að þær yrðu hans síðustu. Hann sagði að ekkert hefði breyst í þeim efnum, hann mun láta völdin í hendur eftirmanni sínum, Gordon Brown, fjármálaráðherra, þegar rétti tíminn til þess rynni upp en núna væri mikilvægast fyrir Verkamannaflokkinn að einbeita sér að því að stýra landinu. Tímasett brotthvarf forsætisráðherrans myndi hins vegar lama ríkisstjórnina í störfum sínum. Stuðningur við Blair í þingflokki verkamanna er ekki mjög afgerandi eins og augljóslega kom fram í viðhorfskönnun BBC sem gerð var á meðal óbreyttra þingmanna flokksins. Allmargir vilja að forsætisráðherrann segi strax af sér embætti og aðeins fjórir vilja að hann stýri landinu allt fram að næstu kosningum sem að óbreyttu verða árið 2010. Andstæðingar Blairs telja að hann hafi fært Verkamannaflokkinn allt of langt til hægri og þeir sjá í Gordon Brown mann sem yrði uppruna flokksins trúrri. Blair sagði hins vegar Brown jafn einarðan stuðningsmann "nýja Verkamannaflokksins" eins og hann sjálfur og þeir sem héldu annað hefðu á röngu að standa. Stjórnmálaskýrendur telja líklegast að Blair muni eftirláta Gordon Brown völdin í flokknum eftir þrjú ár í síðasta lagi og Brown muni svo boða til kosninga nokkrum mánuðum síðar.
Erlent Fréttir Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Fleiri fréttir „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Sjá meira