Skógareldar í Noregi 6. maí 2006 14:15
Skólgareldar kviknuðu á tveimur stöðum í og við Björgvin í Noregi í gær. Greiðlega gekk að slökkva eldinn á öðrum staðnum á meðan enn logar á hinum. Flytja þurfti um 70 manns frá heimilum sínum um miðja nótt. Miklir skógareldar kviknuðu í Kanadaskógi í Björgvin í gærkvöldi. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá grilli en efnt hafði verið til grillveislu á strönd rétt í skógarjaðrinum. Skotfærageymsla var staðsett í skóginum og þegar var farið í að fjarlægja allt þaðan út. Á meðan börðust slökkviliðsmenn við eldana og tókst að ráða niðurlögum þeirra um klukkan fjögur í nótt að íslenskum tíma. Þá var þegar búið að tryggja að nálæg hús væru ekki í hættu. Óttast er að eldur kunni að kvikna á ný þar sem vindasamt er á svæðinu. Því verða slökkviliðsmenn á vakt þar fram á kvöld og lengur ef með þarf. Áður en það tók að loga í Kanadaskógi kviknaði eldur í Sotra, rétt fyrir utan Björgvin, síðdegis í gær. Skömmu eftir útkall töldu slökkvuliðsmenn að þeir hefðu náð tökum á eldinum og slökkt hann. Sú varð ekki rauninn því eldurinn blossaði upp á ný í nótt. Flytja þurfti um sjötíu manns frá heimilum sínum í nótt þar sem óttast var að eldurinn myndi teygja sig í nálæg hús. Eldurinn nær yfir um tíu ferkílómetra svæði frá Morland í suðri til Fjæreida í norðri. Eldurinn breiddi hratt úr sér vegna þess hve mikill vindur var á svæðinu. Talið er að um íkveikju sé að ræða og lögregla auglýsir því eftir upplýsingum frá almenningi sem gætu hjálpað til við að hafa upp á brennuvarginum.
Erlent Fréttir Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Fleiri fréttir „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Sjá meira