Erlent

Arftaki Rumsfelds

Robert Gates t.h. og Donald Rumsfeld, fráfarandi varnarmálaráðherra.
Robert Gates t.h. og Donald Rumsfeld, fráfarandi varnarmálaráðherra. MYND/AP

Aðeins nokkrum tímum eftir að Donald Rumsfeld sagði af sér embætti sem varnarmálaráðherra Bandaríkjanna útnefndi Bush forseti eftirmann hans í embættið. Sá heitir Robert Gates og er fyrrverandi framkvæmdastjóri bandarísku leyniþjónustunnar CIA.

Bush jós manninn lofi við hátíðlega athöfn á skrifstofu sinni og sagði meðal annars að hann hefði reynslu af að vinna með leiðtogum beggja stjórnmálaflokkanna, nokkuð sem mun koma sér vel í samvinnu með repúblikana í Hvíta húsinu og demókrata í meirihluta í þinginu.

Áður en hann getur tekið við embætti þarf öldungadeildin hins vegar að samþykkja hann. Það er því undir demókrötum komið hvort hann hlýtur embættið eður ei.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×