Erlent

Norsk vegabréf eftirsótt hjá fölsurum

Vegabréf.
Vegabréf.

Vegabréfafalsarar eru sólgnir í norsk vegabréf, að því er fréttavefur Aftenposten greinir frá. Þar segir að Interpol hafi fengið tilkynningar um 130 þúsund norsk vegabréf sem hafa horfið. Haft er eftir yfirmanni hjá lögreglunni í Noregi að stolin norsk vegabréf séu vinsæl erlendis. Margir noti vegabréfin til að komast inn í Noreg og þaðan séu þeim allir vegir færir um Schengen-svæðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×