Erlent

Rússar banna Borat

Borat með ónefndri vinkonu.
Borat með ónefndri vinkonu. MYND/af netinu

Rússneska menntamálaráðuneytið ætlar ekki að heimila dreifingu grínmyndarinnar "Borat" í landinu. Yfirvöld í Rússlandi segja myndina særa og niðurlægja þjóðarbrot og trúarhópa.

Myndin hefur vakið mikla reiði í Kasakstan, nágrannlandi Rússlands og fyrrum Sovétlýðveldi. Titilpersóna myndarinnar, Borat, er kasaktsanskur blaðamaður sem fer í heimildarferð um Bandaríkin. Í myndinni birtir hann afskræmda mynd af heimalandi sínu, Kasakstan, með meinfyndnum lýsingum á uppspunninni fáfræði og afturhaldssemi landa sinna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×