Erlent

Öryggisráðið fundar um árás Ísraela á Beit Hanoun

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. MYND/AP

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundar í dag um árás Ísraelsmanna á bæinn Beit Hanoun í Palestínu í gærmorgun þar sem 18 manns létu lífið, þar á meðal konur og börn. Sendiherra Palestínumanna gagnvart Sameinuðu þjóðunum óskaði eftir tafarlausum fundi og því að öryggisráðið fordæmdi árásina.

Fjölmörg ríki hafa fordæmt árásina og lýst hefur verið yfir þriggja daga þjóðarsorg í Palestínu. Búist er við fjölmennum minningargöngum í dag þegar fórnarlömbin verða jörðuð.

Ísraelsk dagblöð birtu misjöfn viðbrögð við árásinni í dag. Nokkur fordæmdu árás hersins og hörmuðu hana. Önnur sögðu þetta verðið sem Palestínumenn greiddu fyrir að hafa gert eldflaugaárásir á Ísrael.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×