Erlent

Einstakt tækifæri fyrir efnahag Afríku

Afríka hefur núna sjaldgæft tækifæri til að snúa vörn í sókn og bæta efnahag álfunnar, þar sem saman fer hagstætt alþjóðahagumhverfi, niðurfelling skulda og breytingar í uppbyggingu. Þetta sagði varaframkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í gærkvöldi. John Lipsky er í sinni fyrstu heimsókn til suðurhluta Afríku síðan hann tók við embætti í september.

Hann sagði að batnandi efnahagur álfunnar síðustu tvö árin hafi verið "óvænt ánægja". Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn býst við því að hagvöxtur á svæðinu verði í kringum 5,4% á þessu ári og 5,9% á því næsta. Hins vegar benda hagfræðingar sjóðsins á að batinn sé ekki nægilegur til þess að ná þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna sem meðal annars ganga út á að helminga fátækt í heiminum og ná árangri í baráttu við landlæga sjúkdóma á borð við malaríu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×