Erlent

Snemmbúnar kosningar í Serbíu

Boris Tadic, forseti Serbíu.
Boris Tadic, forseti Serbíu. MYND/AP

Boris Tadic, forseti Serbíu, boðaði til snemmbúinna kosninga í landinu í dag. Þær fara fram þann 21. janúar á næsta ári og mun þetta hafa einhver áhrif á það hvenær ákvörðun verður tekin um framtíð Kosovo-héraðs. Fulltrúar Bandaríkjamanna, Breta, Rússa, Frakka, Þjóðverja og Ítala funda í dag um næstu skref í málefnum Kosovo.

Stórveldin eru jákvæð gagnvart kröfu meirihluta Albana um sjálfstæði og höfðu þau gefið í skyn að ef kosningarnarnar yrðu haldnar í desember myndu þau bíða með að tjá sig um framtíð Kosovo fram yfir kosningar til þess að öfgaþjóðernissinnar í Serbíu geti síður aukið fylgi sitt með því að vísa til málefna Kosovo.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×