Erlent

Starfsfólk greip til sinna ráða

Ánægð með jólatréð Á hverju afgreiðsluborði er nú eitt lítið jólatré.
Ánægð með jólatréð Á hverju afgreiðsluborði er nú eitt lítið jólatré. MYND/AP

Harðar deilur hafa staðið um jólatré í flugstöðvarbyggingu við sameiginlegan alþjóðaflugvöll borganna Seattle og Tacoma í Bandaríkjunum.

Flugvallaryfirvöld létu fjarlægja níu jólatré úr byggingunni eftir að gyðingur nokkur lagði fram beiðni um að fá að setja þar líka upp stóra sjö arma ljósastiku í tilefni af musterisvígsluhátíðinni, sem gyðingar halda um svipað leyti og kristnir menn halda jól.

Starfsfólk flugvallarins var þó engan veginn sátt við þessa niðurstöðu, safnaði í sjóð og keypti fullt af litlum jólatrjám sem sett voru upp á öll afgreiðsluborð vallarins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×