Erlent

Pólskir andófsmenn heiðraðir

Götubardagar óeirðalögreglu og stuðningsmanna Samstöðu voru settir á svið í tilefni afmælisins, hér á torgi Gamla bæjarins í Varsjá.
Götubardagar óeirðalögreglu og stuðningsmanna Samstöðu voru settir á svið í tilefni afmælisins, hér á torgi Gamla bæjarins í Varsjá. MYND/AP

Pólverjar minntust þess í gær að rétt 25 ár eru liðin frá því að kommúnistastjórnin í landi setti herlög til að brjóta á bak aftur andóf sem verkalýðshreyfingin Samstaða hafði forgöngu um.

Wojciech Jaruzelski hershöfðingi setti herlögin þann 13. desember 1981 og bannaði Samstöðu. Þúsundum manna sem tengdust Samstöðu og andófshreyfingunni gegn kommúnistastjórninni var varpað í fangelsi. Þeirra á meðal var Lech Walesa, þáverandi leiðtogi Samstöðu og síðar forseti Póllands, og núverandi forseti, Lech Kaczinsky.

Rétt eftir miðnætti – upp á mínútu aldarfjórðungi eftir að sérsveitalögreglumenn byrjuðu að smala andófsmönnum saman í krafti herlaga – veitti Kaczynski 69 Samstöðumönnum, sem andæfðu kommúnistastjórninni á sínum tíma, heiðursorðu við athöfn í borginni Wroclaw (Breslau).

Jaruzelski varði síðar gerðir sínar með því að hefði hann ekki gripið til þessara aðgerða hefðu Sovétmenn gert innrás og tekið fram fyrir hendurnar á Póllandsstjórn. Hann hefði því afstýrt enn stærri harmleik. Jaruzelski sætir ákæru fyrir dómstólum fyrir meint stjórnarskrárbrot með því að setja herlögin og fangelsa þúsundir Pólverja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×