Stundum má drepa án dóms 15. desember 2006 05:00 Einn þeirra sem ísraelskir hermenn hafa tekið af lífi án fyrirliggjandi dóms er Sheikh Ahmed Yassin, sem var andlegur leiðtogi Hamas-samtakanna. Myndin er tekin síðastliðið vor þegar Palestínumenn minntust þess að tvö ár voru liðin frá láti hans. MYND/AP
Hæstiréttur Ísraels kvað í gær upp úrskurð, sem beðið hefur verið árum saman, um fyrir fram ákveðin dráp á óvinveittum Palestínumönnum. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að samkvæmt alþjóðalögum væri stundum heimilt að fremja slík dráp, en ísraelski herinn hefur stundað slíkt árum saman. Dómstóllinn sagði að hvert tilvik þyrfti að vega og meta áður en kveðið væri upp úr með hvort það samræmdist alþjóðalögum eða ekki. Ísraelski herinn hóf að beita þessari aðferð, að drepa markvisst Palestínumenn sem grunaðir eru um að skipuleggja hryðjuverk, fljótlega eftir að slitnaði upp úr friðarviðræðum og Palestínumenn hófu uppreisnar-aðgerðir haustið 2000. Ísraelsku mannréttindasamtökin B‘tselem telja að ísraelski herinn hafi orðið 339 Palestínumönnum að bana með þessum hætti. Þar af hafi 210 verið skotmörk hermannanna en hinir hafi látið lífið vegna þess að þeir hafi verið nærstaddir þegar árásirnar voru gerðar. Oftast eru árásir á mennina gerðar úr lofti, ýmist úr vopnuðum þyrlum eða ómönnuðum smáflugvélum, og er þá flugskeytum skotið úr þeim á bifreiðar á jörðu niðri. Oftast er byggt á upplýsingum frá leyniþjónustumönnum eða uppljóstrurum um ferðir hinna óvinveittu Palestínumanna. Bandaríski herinn hefur beitt sams konar aðferðum í Afganistan og Írak. Alræmdasta aðgerðin af þessu tagi var þegar sprengju var varpað á Salah Shehadeh í júlí árið 2002. Hann var háttsettur í Hamas, sagður skipuleggja sjálfsmorðssprengingar, en fyrir árásinni urðu einnig lífvörður hans og þrettán manns að auki, þar af níu börn sem öll týndu lífi. Þessi árás varð til þess að alþjóðleg mannréttindasamtök kröfðust þess að ísraelskir hermenn yrðu dregnir fyrir dóm.
Mest lesið „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur Innlent Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ Erlent Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Erlent Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Innlent Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Innlent Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Innlent Tíu látnir í skotárás á skóla í Kanada Erlent „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Innlent Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Innlent Fleiri fréttir Tíu látnir í skotárás á skóla í Kanada Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ FBI birtir myndir af grímuklæddum manni við heimili Guthrie Macron segir Evrópumönnum að hrista af sér slenið Undirbúa nýja innrás til að afvopna Hamas Nýtt samkomulag eða nýtt vopnakapphlaup? Sprengdu hurðina af brynvörðum bíl Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Þrýsta á Ísraela varðandi Vesturbakkann Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmta viðaukans Var með krabbamein og lést af völdum blóðtappa í lunga Hvetur Starmer til að segja af sér Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Áhrifamiklir norskir erindrekar rannsakaðir vegna Epsteins Vilja herða skilyrði fyrir sænskum ríkisborgararétti Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Christchurch-morðinginn vill draga játninguna til baka Jimmy Lai dæmdur í 20 ára fangelsi Afgerandi sigur stjórnarflokkanna í Japan Prinsinn fyrrverandi deildi trúnaðarupplýsingum með Epstein Kviknaði í minnisvarða um fórnarlömb eldsvoðans Nánasti ráðgjafi Starmers segir af sér Japanir halda í kjörklefana Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Sjá meira