Erlent

Óttast að 600 manns hafi látist í skriðum

Aurskriðurnar færðu fjölmörg hús við rætur eldfjallsins Mayan nær algjörlega í kaf. Aðeins húsþökin standa nú upp úr sandinum.
Aurskriðurnar færðu fjölmörg hús við rætur eldfjallsins Mayan nær algjörlega í kaf. Aðeins húsþökin standa nú upp úr sandinum. MYND/AP

Óttast er að yfir 600 manns hafi farist í miklum aurskriðum í kjölfar fellibyls á Filippseyjum síðustu daga. Í gær höfðu á fjórða hundrað lík fundist og ríflega 300 manns var enn saknað. Litlar líkur voru taldar á því að nokkur ætti eftir að finnast á lífi. Hafist var handa við að jarðsetja fórnarlömb hamfaranna þegar í gær vegna þess hversu ört líkin rotnuðu í hitanum.

Þykk, svört eðja sem flæddi um allt gerði björgunarmönnum erfitt fyrir, en talið er að þeir hafi ekki fundið neinn á lífi í eðjunni frá því á fimmtudag þegar fellibylurinn Durian gekk á land. Vindhraði hans fór í rúma sjötíu metra á sekúndu þegar verst lét.

Albay-fylki á suðurhluta Luzon-eyjunnar varð verst úti og þar höfðu tæplega 300 fundist látnir í gær. Skriðurnar féllu flestar úr Mayon, sem er eitt virkasta eldfjall landsins. Aska og stórgrýti hafði safnast saman í hlíðum fjallsins undanfarið í kjölfar óvenju mikillar virkni og bylurinn sópaði því öllu niður á þorpin við rætur fjallsins.

Þungt hljóð var í fylkisstjóranum Fernando Gonzales í gær. „Allir hlutar fylkisins hafa orðið storminum að bráð. Hér er algjör eyðilegging. Aldrei áður í sögunni höfum við orðið vitni að öðru eins vatnsmagni. Nánast hvert einasta byggt svæði er á kafi." Hús nærri bænum Padang, sem er í um tíu kílómetra fjarlægð frá höfuðborg fylkisins, fóru nærri algerlega á kaf í eðju og stóðu aðeins þökin upp úr. Mörg lík bárust á haf út og skolaði síðan á land í nálægum bæjum. Sums staðar fundust einungis leifar af hinum látnu.

Hinn 21 árs Silangan Santander var við jarðarför Larry bróður síns í gær. Aðeins fundust fætur hans og neðri hluti líkama. Ófrísk ekkja hans treysti sér ekki til að mæta við jarðarförina. „Öll húsin í hverfinu okkar voru horfin," sagði hún og bætti því við að bróður hennar væri einnig saknað. „Þar er ekkert nema sandur, grjót og vatn."

Kanadamenn hafa veitt rúmum sextíu milljónum til hjálparstarfsins og Japanar tólf milljónum.

Lítið sést af þessu húsi annað en þakið eitt. Þessir íbúar skoðuðu í gær hina gífurlegu eyðileggingu.MYND/AP


.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×