Erlent

Hátíðarhöldin án Kastrós

Lokadagur afmælis-hátíðar á Kúbu hófst í Havana í gær í tilefni af því að fimmtíu ár eru liðin síðan núverandi forseti landsins, Fídel Kastró, og félagar hans gerðu uppreisn á Kúbu. Hátíðarhöldin hófust án viðveru Kastrós en þegar var búið að fresta hátíðarhöldunum um tvær vikur vegna heilsufars hans.

Miklar vangaveltur hafa verið um það hvort Kastró myndi láta sjá sig á þessum hátíðarhöldum en forsetinn hefur ekki sést síðan í júlí og hafa skilaboð um bágt heilsufar hans aðeins borist frá ríkisstjórninni. Kastró varð áttræður fyrr á árinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×