Erlent

Schröder og Pútín semja um gas

Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, og Vladimír Pútín Rússlandsforseti handsöluðu í gær samning um að lögð verði jarðgasleiðsla beint frá Rússlandi til Þýskalands, frá Viborg við botn Finnska flóa, 1.200 km eftir botni Eystrasalts til norður-þýsku borgarinnar Greifswald. Með samningnum vonast Rússar til að auka gasútflutning sinn og Þjóðverjar til að tryggja sér öruggan aðgang að orku til frambúðar. Samningurinn er líka öðrum þræði afurð góðra tengsla leiðtoganna tveggja og eindregins vilja þeirra til að ganga frá málinu fyrir þingkosningarnar í Þýskalandi þann 18. þessa mánaðar, en fastlega er búist við því að þá verði stjórnarskipti í Berlín. Pólverjar eru ósáttir við samninginn því þeir hafa hingað til haft tekjur af því að gas- og olíuleiðslur frá Rússlandi til Vestur-Evrópu liggja um Pólland. Samkvæmt samningnum mun nýja gasleiðslan verða að 51 prósenti í eigu rússneska ríkisfyrirtækisins Gazprom en hin 49 prósentin skiptast jafnt á milli þýsku fyrirtækjanna E.on og BASF. Bjóða á verkið út árið 2010.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×