Erlent

Meint kosningasvindl í Egyptalandi

Ásakanir um kosningasvindl varpa skugga á fyrstu lýðræðislegu forsetakosingarnar í Egyptalandi, sem fram fóru í gær. Úrslitin munu væntanlega ekki liggja fyrir fyrr en á morgun, en andstæðingar Hoznis Mubarak, núverandi forseta, segja starfsmenn á kjörstöðum ýmist hafa skipað fólki að kjósa hann eða mútað því. Þá benda þeir á að ægivald hans á fjölmiðlum í landinu geri það að verkum að ekki sé sagt frá svindlinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×