Discovery lenti heilu og höldnu 9. ágúst 2005 00:01
Geimferjan Discovery sneri aftur til jarðar í gær eftir 14 daga spennuþrunga ferð. Óvíst er hvenær geimferjurnar fara aftur út í himingeiminn því ekki liggur fyrir hver rót erfiðleikanna við flugtak þeirra er. Lendingar geimferjunnar Discovery hefur verið beðið með óttablandinni eftirvæntingu síðustu daga, ekki síst vegna skakkafalla í flugtakinu 26. júlí, svipuðum þeim og urðu Kólumbíu að fjörtjóni í febrúar 2003 þegar hún fórst með sjö manna áhöfn. Lendingu í Flórída á mánudagsmorgun var frestað vegna skýjaþykknis og í gær varð þrumuveður yfir Canaveral-höfða til þess að ákveðið var að flytja lendinguna til Edwards-herflugvallarins í Mojave-eyðimörkinni í Kaliforníu. Klukkan 5:11 að staðartíma (12:11 að íslenskum tíma) lenti svo geimferjan í náttmyrkrinu. "Til hamingju með sérstaklega glæsilegt flug," sagði stjórnstöð Bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA þegar ferjan hafði numið staðar. "Við erum fegin að vera komin heim og og við óskum öllum sem þátt tóku í leiðangrinum til hamingju með vel unnið verk," svaraði Eileen Collins, leiðangursstjóri Discovery. Skömmu eftir lendingu skoðaði áhöfnin farkostinn og var ekkert sem benti til annars en að allt væri í góðu lagi. Engu að síður ítrekaði Michael Griffin forstjóri NASA í gær að óvíst væri hvenær geimferjum stofnunarinnar yrði skotið út í geiminn á ný. Á meðan ekki liggur fyrir hvers vegna hitahlífar falla af eldsneytisflaugum geimferjanna, eins og gerðist hjá Discovery 26. júlí og hjá Kólumbíu 2003, verða þær látnar halda kyrru fyrir. Þótt allir hefðu glaðst innilega yfir vel heppnaðri lendingu þá urðu fjölskyldur geimfaranna sem biðu á Flórída fyrir örlitlum vonbrigðum með að ferjan skyldi ekki lenda þar. Í dag verða hins vegar kærkomnir endurfundir ástvinanna í Houston, Texas. Sjálf geimferjan verður aftur á móti í viku í viðbót í Kaliforníu en síðan verður henni komið fyrir ofan á Boeing 747 flugvél sem flytur hana í heimahöfn á Canaveral-höfða.
Erlent Fréttir Mest lesið Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Innlent Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Innlent Bolsonaro í stofufangelsi Erlent Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Erlent „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Innlent Sigurður Björnsson óperusöngvari látinn Innlent Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs Innlent Fleiri fréttir Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Rússneskt eldfjall gýs í fyrsta sinn í sex hundruð ár Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Maxwell flutt í þægilegra fangelsi Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa „Clinton áætlunin“ líklega tilbúningur rússneskra njósnara „Ekki taka. Endurheimta. Þetta er okkar“ Arabaríkin sameinast um afvopnun Hamas og fordæmingu á árásunum 7. október Bukele ryður leiðina að einræði í El Salvador Freista þess að hindra að Bandaríkin fargi miklu magni getnaðarvarna Hvatti ríki til að stuðla að stjórnarskiptum í Rússlandi Sjá meira