Þingkosningar í janúar 9. ágúst 2005 00:01
Mahmoud Abbas, forseti Palestínsku heimastjórnarinnar, lofaði í gær að þingkosningar færu fram í janúar. Hann hvatti Palestínumenn til að halda ró sinni þegar brottflutningur ísraelskra landnema frá Gaza-ströndinni hefst í næstu viku. Róstusamt hefur verið á Gaza að undanförnu vegna brottflutningsins, bæði í röðum Ísraela og Palestínumanna, og er búist við að ólgan muni stigmagnast á næstu dögum. Í ræðu á þinginu í gær hvatti Abbas landa sína til að sýna stillingu þegar flutningarnir hæfust. Beindi hann orðum sínum sérstaklega til herskárra uppreisnarmanna sem hafa skotið eldflaugum að landnemabyggðunum, þrátt fyrir vopnahléssamninginn. Í ræðu sinni lofaði Abbas að boða til þingkosninga í janúar næstkomandi, án þess að tiltaka sérstaka dagssetningu í þeim efnum. Kosningarnar áttu raunar að vera haldnar þann 17. júlí síðastliðinn en Abbas ákvað að fresta þeim að eigin sögn vegna brottflutningsins frá Gaza. Andstæðingar hans telja aftur á móti að frestunin hafi helgast af slæmri stöðu Fatah-hreyfingar forsetans vegna spillingarmála. Hamas-hreyfingin hefur þegar sagst ætla að taka þátt í janúarkosningunum.
Erlent Fréttir Mest lesið Líþíumrafhlaða líkleg orsök eldsins Innlent Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Erlent Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Erlent Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Innlent Eins og að vera fangi í eigin líkama Innlent Gullfallegt fley Getty-kóngsins við Reykjavíkurhöfn Innlent Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Innlent Þegar Þorvaldur í Síld og fisk varð örlagavaldur Loftleiða Innlent Grunaðir um að neyða pilt upp í bíl og gefa honum rafstuð Innlent Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Innlent Fleiri fréttir Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Rúmenar ganga aftur að kjörborðinu Leó orðinn páfi Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Ætlar að tala við Pútín um að „binda enda á blóðbaðið“ Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Níu drepnir í drónaárás á rútu Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Hlýtur 25 ára dóm fyrir banatilræðið við Rushdie Gerðu umfangsmiklar árásir á Jemen Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Diplómatinn sem grunaður var um njósnir er látinn Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum „Rússland vill augljóslega stríð“ Rekja fjöldamorðið í Örebro til gremju byssumannsins vegna lífs síns Íhuga að refsa Pakistönum með stíflum og fráveituskurðum Litlar væntingar til fyrstu beinu friðarviðræðnanna í meira en þrjú ár Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy „Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Hnattræn hlýnun nær í skottið á einni af perlum Patagóníu ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Sjá meira