Erlent

Dönsk kvikmynd hlýtur kvikmyndarverðlaun Norðurlandaráðs

Danska kvikmyndin Morðið, eða Drabet eins og myndin heitir á frummálinu, hlýtur kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs í ár.

Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu, í tengslum við árlegt þing Norðurlandaráðs í Reykjavík, nú fyrr í kvöld. Verðalaunin eru 350.000 danskar krónur.

Kvikmyndin er framleidd af Zentropa Entertainments en handritshöfundar myndarinnar eru þau Kim Leona, Dorte Høgh, Mogens Rukov og Per Fly.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×