Erlent

Milljón manns á götunum

Um ein milljón verkamanna lagði niður vinnu og gekk um götur borga í Frakklandi í dag til þess að mótmæla fyrirhuguðum efnahagsumbótum ríkisstjórnarinnar. Mótmælendur andæfðu einkavæðingu ýmissa ríkisfyrirtækja, svo og sífellt lakari lífskjörum í landinu. Tafir urðu á lestar- og strætósamgöngum víða í Frakklandi og sömuleiðis urðu tafir á flugi til og frá París. Til átaka kom á milli lögreglu og mótmælenda á Korsíku en þar hafa verið mikil mótmæli vegna áætlunar um að selja skipafélag í eigu ríkisins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×