Erlent

Samgönguvandi vegna verkfalls

Almenningssamgöngur fóru úr skorðum í Frakklandi í dag þegar nokkur stærstu launþegasamtök landsins lýstu yfir sólarhringsverkfalli. Margir áttu erfitt með að komast í vinnu í Frakklandi í dag enda voru starfsmenn samgöngufyrirtækja meðal þeirra sem fóru í sólarhringsverkfall. Samt sem áður sýndu margir verkfallsmönnum skilning. Tugþúsundir verkfallsmanna gengu um götur Parísar og um 140 annarra borga og bæja í Frakklandi í dag. Verkfallið beinist gegn hagstjórn Dominique de Villepins forsætisráðherra, 9,9 prósenta atvinnuleysi og lögum sem gera minni fyrirtækjum auðveldara að segja upp fólki. Að auki vilja verkfallsmenn halda í 35 klukkustunda vinnuvikuna í Frakklandi. Meðal verkfallsmanna eru flugumferðarstjórar og einhverjar tafir hafa verið á flugi. Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir að ekki sé gert ráð fyrir öðru en að flug héðan sem er áætlað til Parísar í fyrramálið verði á áætlun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×