Erlent

Formlegri leit hætt í Louisiana

Yfirvöld í Louisiana hafa formlega hætt leit að fórnarlömbum fellibylsins Katrínar sem reið yfir suðurríki Bandaríkjanna fyrir um fimm vikum. Opinber tala látinna í ríkinu er nú 964 en upphaflega var óttast að hátt í tíu þúsund manns hefðu látist í hamförunum. Leit er hins vegar ekki alveg hætt þar sem einkafyrirtæki hefur verið ráðið til að leita fólks ef tilkynningar um lík berast yfirvöldum. Lífið í New Orleans sem varð mjög illa úti í hamförunum er óðum að hverfa í sitt fyrra horf og hafa þúsundir íbúa borgarinnar streymt til hennar undanfarna daga. Auk þess hafa sum fyrirtæki hafið starfsemi á ný en rafmagn og drykkjarvatn er aðeins að fá á nokkrum stöðum í borginni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×