Erlent

Hvatti til fóstureyðinga svartra

William Bennett, menntamálaráðherra í ríkisstjórn Ronalds Reagan, reitti stóran hluta Bandaríkjamanna til reiði í vikunni þegar hann sagði í útvarpsþætti sínum að ef börnum þeldökkra væri eytt á fósturstigi myndi draga úr glæpum. Bennett viðurkenndi að slíkar ráðstafanir væru siðferðislega óverjandi en engu að síður ítrekaði hann að glæpatíðni myndi minnka væri gripið til þeirra. Talsmaður Hvíta hússins sagði að forsetinn teldi ummæli flokksbróður síns afar óviðeigandi og demókratar skoruðu á hann að draga þau til baka.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×