Erlent

Ríkisstjórnin rekin frá völdum

Viktor Júshcenko, forseti Úkraínu, hefur vikið forsætisráðherra landins, Júlíu Tímótsjenkó, og allri ríkisstjórn hennar frá völdum. Ákvörðun forsetans kemur í kjölfar uppsagna tveggja embættismanna sem ekki sögðust geta liðið þá spillingu sem þrifist í stjórnkerfinu. Héraðsstjóranum Júrí Jekhanúrov hefur verið falið að mynda nýja stjórn. Júlía Tímótsjenkó var einn helsti samherji og samstarfsmaður Júshcenkos sem komst til valda í ársbyrjun. Júschenko gagnrýndi harðlega stjórnarhætti fyrrverandi forseta Úkraínu Lenonid Kuchma, en liggur nú sjálfur undir ámæli fyrir hversu hægt gengur að betrumbæta stjórnkerfið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×