Erlent

Ætti að vera líflátinn

"Saddam Hussein er stríðsglæpamaður og á skilið að vera líflátinn 20 sinnum á dag vegna glæpa sinna gegn mannkyninu," sagði Talabani í sjónvarpsviðtali. Hann bætti því við að Saddam hefði reynt að taka sig af lífi að minnsta kosti 20 sinnum. Talabani er þekktur fyrir andstöðu sína gegn dauðrefsingum. Talabani gaf ekki nánari útskýringu á þeim glæpum sem hann sagði Saddam hafa gengist við. "Það eru hundrað ástæður fyrir því að hann eigi að verða dæmdur til dauða," sagði Talabani. Hann sagði og að hann myndi ekki sjálfur undirrita leyfi til að taka Saddam af lífi. Réttarhöldin yfir Saddam Hussein hefjast 19. október. Hann er meðal annars sakaður um fjöldamorð á 143 shíamúslimum í bænum Dujal, norður af Bagdad, árið 1982. Nánir samstarfsmenn hans eru sakaðir um þátttöku í fjöldamorðunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×