Mikil gleði eftir björgun kafbáts 7. ágúst 2005 00:01
Mikil gleði ríkir í Rússlandi eftir að sjö kafbátsmönnum var bjargað heilum á húfi eftir þrjá sólarhringa á hafsbotni. Loftbirgðir kafbátsins fóru hratt þverrandi og áhöfnin gat ekki gert annað en beðið og vonað það besta. Margir rússnesku sjóliðanna um borð í björgunarskipunum tárfelldu þegar dvergkafbáturinn AS-28 skaust upp á yfirborðið og félagar þeirra komu upp um lúguna og veifuðu til þeirra. Kafbátsmennirnir báru sig vel þótt það hljóti að hafa verið mikil eldraun að hírast í ísköldu bátkríli sínu á 190 metra dýpi meðan loftbirgðirnar minnkuðu og minnkuðu. Eldraun þeirra hófst síðastliðinn fimmtudag þegar þeir voru á flotaæfingu undan ströndum Kamsjatkaskaga. Stór netadræsa festist í skrúfunni og kafbáturinn sökk eins og steinn. Á leiðinni niður flæktist hann í einhverja kapla, hugsanlega frá neðansjávar hlustunarstöðvum Rússa. Þegar hann skall á hafsbotninum var hann svo umvafinn drasli að hann haggaðist ekki þótt áhöfnin reyndi að blasa úr ballestunum og gefa allt í born. Dýpið var svo mikið að ekki var nokkur möguleiki fyrir þá að yfirgefa bátinn og synda upp á yfirborðið. Þeir gátu því ekkert annað gert en að bíða og vona að félagar þeirra gætu bjargað þeim. Rússum hefur eflaust verið ofarlega í huga hversu hörmulega tókst til þegar kjarnorkukafbáturinn Kúrsk sökk fyrir fimm árum. 118 sjóliðar fórust með bátnum og mikil reiði braust út meðal þjóðarinnar fyrir seinagang flotans að biðja um aðstoð erlendis frá. Í þetta skipti var samstundis sent út alþjóðlegt neyðarkall. Bretar og Bandaríkjamenn brugðust samstundis við og sendu fjarstýrða björgunarkafbáta flugleiðis til Kamsjatka. Nokkrir rússneskir flotaforingjar af gamla skólanum voru lítið hrifnir af því. Undan ströndum Kamsjatka er mýgrútur af alls konar neðansjávar stöðvum sem eru hernaðarleyndarmál og flotaforingjunum leist ekkert á að fyrrverandi höfuðandstæðingar þeirra fengju að kafa þar. Sem betur fór var ekki hlustað á þá og það var breski kafbáturinn sem klippti kaplana og netadræsunar af AS-28 og dró hann upp á yfirborðið. Varnarmálaráðherra Rússlands, Sergei Ivanov, létti mikið við björgunina. Hann sagði skipverja hafa sýnt hvað í þeim bjó og að þeir hefðu sýnt mikinn baráttuvilja. Þá þakkaði hann sjóliðum í Kyrrahafsflotanum og björgunarmönnum frá öðrum löndum fyrir þeirra starf. Það tók breska björgunarkafbátinn fimm klukkustundir að klippa draslið utan af AS-28. Talið er að loftbirgðir bátsins hefði dugað áhöfninni tíu til tólf klukkustundir í viðbót, eftir það hefðu þeir kafnað. Það má því segja að hurð hafi skollið nærri hælum. Vladímír Pútín, forseti Rússlands, hefur ekkert sagt opinberlega um slysið eða björgunina. Leiðtogi stjórnarandstöðunnar segir hins vegar óskiljanlegt að Bretar skuli ráði yfir nauðsynlegri björgunartækni við þessar aðstæður en Rússar ekki.
Erlent Fréttir Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Fleiri fréttir Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Sjá meira