Erlent

Sjö látnir í flugslysi við Sikiley

Að minnsta kosti sjö létust og 20 slösuðust þegar flugvél á vegum Tunisair steyptist í sjóinn undan ströndum Sikileyjar í dag. Vélin var á leið frá Bari á Ítalíu til eyjarinnar Djerba við Túnis þegar flugmálayfirvöldum á Palermo-flugvelli á Sikiley barst tilkynning frá flugmönnunum um tæknibilun í vélinni. Í kjölfarið hugðust þeir halda til flugvallarins en náðu ekki þangað svo þeir reyndu að nauðlenda vélinni á hafi úti en það mistókst. 35 manns voru í vélinni og segja yfirvöld að þriggja sé enn saknað. Vélin var tveggja hreyfla af gerðinni ATR-42 og var 50 sæta.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×