Erlent

Hamas-foringi myrtur

Ariel Sharon forsætisráðherra Ísraels sagði í gær að öllum brögðum yrði beitt til að stöðva palestínska uppreisnarmenn. Hann vill tryggja að áætlanir um brottflutning ísrelskra landtökumanna á Gaza gangi sem allra best. Þúsundir ísraelskra hermanna hafa nú komið sér fyrir við landamæri Gaza-strandarinnar og bíða skipunar um að ráðast til atlögu. Óttast er að palestínskir uppreisnarmenn láti hins vegar hart mæta hörðu og hefni sín grimmilega ef herinn ræðst á heimastjórnarsvæðið. Mahmoud Abbas forseti Palestínu lét lögreglumenn fjarlægja fána öfgasamtaka og sagðist ekki mundu líða að grafið yrði undan ríkisstjórn hans. Öfgasamtök hafa undanfarna daga staðið fyrir stórfelldum loftskeytaárásum á ísraelsk skotmörk og hafa sex Ísraelar fallið í þeim síðan á fimmtudag. Svo virðist sem vopnahléssamningurinn síðan í febrúar sé að verða að engu. Í gærmorgun var svo einn leiðtogi Hamas-samtakanna ráðinn af dögum og segja vitni að menn á vegum Ísraelsstjórnar hafi framið morðið. Hamas-liðar hóta hefndaraðgerðum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×