Erlent

Ullandi á 200 km hraða

Nítján ára piltur var tekinn á 200 kílómetra hraða í Ottawa, höfuðborg Kanada, um helgina. Þegar lögreglumenn spurðu piltinn hvernig honum dytti í hug að stofna lífi og limum fólks í hættu með slíkum ofsaakstri varð fyrst fátt um svör. Að lokum gaf hann þá skýringu að hann hafi drukkið einum of mikið af próteindrykk skömmu áður og þyrfti nauðsynlega að komast á klósettið, og það ekki bara til að standa við það. Þessi skýring á athæfinu nægði unga manninum ekki til að sleppa undan refsingu þegar hann var leiddur fyrir dómara og missti hann ökuréttindin í 30 daga, auk þess sem hann fékk 50 þúsund króna sekt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×