Erlent

Ótti um fuglaflensudauðsföll

Grunur leikur á að þrír Indónesar hafi látist úr fuglaflensu. Sé það rétt eru það fyrstu dauðsföllin af völdum veikinnar í landinu. Sidi Fadillah Supari, heilbrigðisráðherra Indónesíu, skýrði frá því í gær að ákveðnar vísbendingar væru um að 38 ára gamall maður og tvær dætur hans, öll búsett í Jakarta, hefðu látist úr fuglaflensu. Ráðherrann sagðist óttast að fólkið hefði smitast við samneyti við annað smitað fólk því ekki er vitað um að það hafi komist í snertingu við fuglakjöt. Formælandi Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, WHO, sagði hins vegar í samtali við BBC að of snemmt væri að segja til um þetta, því engin þekkt dæmi væru um að veiran sem veldur veikinni hefði stökkbreyst þannig að hún gæti borist á milli manna. Síðan í janúar 2004 hafa 53 látist úr fuglaflensu í nágrannalöndunum Kambódíu, Víetnam og Taílandi. Veikin hefur margoft greinst í fuglum í Indónesíu og nýlega var staðfest að vinnumaður á fuglabúgarði hefði smitast.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×