Erlent

Ráðist inn í landbúnaðarráðuneytið

Ólga fer vaxandi á Filippseyjum vegna ásakana um kosningasvindl Gloriu Arroyo, forseta landsins, á dögunum. Í gær réðust 300 bændur inn í landbúnaðarráðuneytið í Maníla og gengu þar berserksgang og kröfðust afsagnar forsetans. Annars staðar í borginni reyndu nokkrir tugir stjórnarandstæðinga að nálgast forsetahöllina en lögregla varnaði þeim vegarins. Fyrr í vikunni mótmæltu tugir þúsunda framgöngu Arroyo í höfuðborginni. Stuðningsmenn forsetans hafa reynt að safna liði og áforma að halda stuðningsfund með allt að 200.000 manns í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×