Sakar þingmenn um firringu 11. nóvember 2005 05:15 Á í Vök að verjast. Þegar eru teikn á lofti um að tekið sé að losna um flokksagann hjá þingmönnum Verkamannaflokksins. Því er hætt við að brosið breiða á andliti Blairs verði sjaldgæfari sjón næstu misserin.
Þótt Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, þurfi ekki að segja af sér í kjölfar þess að neðri deild þingsins felldi lagafrumvarp um hryðjuverkavarnir í fyrrakvöld hefur staða hans veikst verulega. Blair sakar þingmenn um að skilja ekki alvöru málsins. Ákvörðun þingsins á miðvikudagskvöldið hefur valdið talsverðu uppnámi enda hefur stjórnarfrumvarp aldrei áður verið fellt í forsætisráðherratíð Blairs. 49 þingmenn Verkamannaflokksins snerust á sveif með stjórnarandstöðunni og greiddu atkvæði gegn því að lögregla gæti haldið grunuðum hermdarverkamönnum í allt að níutíu daga án þess að birta þeim ákæru. Í staðinn var breytingatillaga samþykkt þar sem heimilað var að lengja gæsluvarðhald úr fjórtán dögum í 28. Þrátt fyrir að meirihluti neðri deildarinnar hafi snúist gegn forsætisráðherranum í málinu ætlar Blair ekki að segja af sér vegna þess. Michael Howard, leiðtogi íhaldsmanna, hvatti hann strax til að láta af embætti en viðurkenndi þó að Blair tækist að öllum líkindum að verjast vantrausti yrði slík tillaga borin upp á þinginu. Charles Clarke innanríkisráðherra kom Blair hins vegar til varnar í viðtali við BBC í gær og sagðist þess fullviss að forsætisráðherrann héldi trúnaði stjórnarþingmannanna út kjörtímabilið. Orð Clarkes virðast óskhyggja því nokkrir þingmenn Verkamannaflokksins lýstu því yfir í gær að þeir hygðust kjósa gegn tillögum stjórnarinnar í mennta- og heilbrigðismálum sem boðaðar hafa verið. Einn þeirra, Paul Farrelly, sagði að sýndi Blair sama stjórnunarstíl þegar þingið fjallaði um þær "myndi fjandinn verða laus". Ríkisstjórnin hittist á fundi í gær en þar sagði Blair hluta þingmanna ekki skynja hryðjuverkahættuna og þeir væru úr tengslum við almenning. Talsmaður forsætisráðherrans sagði Blair hafa hitt yfirmenn lögreglu í gær og þeir hefðu ítrekað nauðsyn þess að geta haldið grunuðum misindismönnum í drjúgan tíma. Því væri forsætisráðherrann enn sannfærðari en áður um að rétt hefði verið að knýja málið fram. Bresku blöðin fjölluðu ítarlega um málið í gær. Daily Telegraph sagði daginn þann svartasta sem Blair hefði upplifað en slúðurblaðið The Sun kallaði þá sem greiddu atkvæði gegn frumvarpinu svikara.
Erlent Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Sjá meira