Erlent

Krefja CIA um svör

Á Palma-flugvelli. Yfirvöld á Spáni hafa fyrirskipað rannsókn á lendingum meintra fangaflutningavéla CIA á flugvellinum á Mallorca.
Á Palma-flugvelli. Yfirvöld á Spáni hafa fyrirskipað rannsókn á lendingum meintra fangaflutningavéla CIA á flugvellinum á Mallorca.

Yfirvöld í hinum ýmsu Evrópuríkjum þrýsta nú á Bandaríkjastjórn að svara fyrir meint fangaflug á vegum bandarísku leyniþjónustunnar CIA um lofthelgi og flugvelli viðkomandi landa.

Talsmaður norska utanríkisríkisráðuneytisins sagði í gær að bandaríska sendiráðið í Noregi hefði neitað því að einkaþota, sem lenti á Óslóarflugvelli í júlí síðastliðnum, hefði verið í leynilegum erindagjörðum fyrir CIA eða aðra bandaríska stjórnarstofnun. Þotan, með einkennisnúmerið N50B, er á lista sem bandarískir fjölmiðlar hafa birt yfir flugvélar sem sagðar eru oft notaðar af CIA til að flytja fanga sem bandarísk yfirvöld hafa grunaða um aðild að hryðjuverkum eða íslömskum öfgasamtökum. Sama þota, sem er af gerðinni Gulfstream, er einnig sögð hafa átt viðkomu á Keflavíkur­flugvelli.

Deilt var um hið meinta fangaflug um sænska lögsögu á sænska þinginu í fyrradag. Lars Ohly, formaður Vinstriflokksins, skoraði á ríkisstjórn Görans Persson að upplýsa allt sem henni er kunnugt um ferðir umræddra flugvéla um sænska flugvelli og lofthelgi. Talsmaður stjórnarinnar, Lars Danielsson, sagði hins vegar að stjórnin vissi ekkert um flug á vegum CIA í Svíþjóð. Sænska TT-fréttastofan hafði áður greint frá því að a.m.k. tvær flugvélar sem talið væri að hefðu verið notaðar til fangaflugs fyrir CIA hefðu lent á sænskum flugvöllum á síðustu þremur árum.

Yfirvöld á Spáni hafa hafið formlega rannsókn á því hvað hæft er í fullyrðingum um að flugvélar í slíkum leynilegum fangaflutningum á vegum CIA hafi ítrekað lent á spænskum flugvöllum. José Antonio Alonso, innanríkisráðherra Spánar, tilkynnti þetta á þriðjudag. Hann sagði í sjónvarpsviðtali að reyndust þessar frásagnir réttar myndi það hafa alvarlegar afleiðingar fyrir samskiptin við Bandaríkin. Að sögn spænskra fjölmiðla hefur CIA einkum notað flugvöllinn á Mallorca til millilendinga. Slíkar lendingar hafi verið að minnsta kosti tíu á tímabilinu frá janúar 2004 til janúar síðastliðins.

Þingmenn tveggja flokka á þinginu í Port­úgal kröfðu í gær ríkisstjórnina svara vegna frétta um að tvær meintar CIA-fangaflutningavélar hefðu sést á flugvöllunum í Porto og Tires við Lissabon.

Getgátur um að CIA reki leynileg fangelsi í Austur-Evrópu og flytji fanga með leynd fram og aftur um evrópska lofthelgi voru líka ræddar á Evrópuþinginu í vikunni. Skorað var á framkvæmdastjórn Evrópusambandsins að rannsaka ásakanirnar. Franco Frattini, sem fer með dómsmál í framkvæmdastjórninni, tjáði þinginu að það væri komið undir ríkisstjórnum hvers aðildarríkis fyrir sig að rannsaka málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×