Fimmtán fangaflugvélar taldar hafa lent í Keflavík 2. nóvember 2005 06:30 Fangaflugvél. Að sögn norska blaðsins Nytid var CIA með flugvélina N227SV á leigu þegar hún flaug frá Möltu til Keflavíkur í óþekktum tilgangi. Hún fór ekki um danska lofthelgi og er því ekki að finna á lista danska þingsins.
Allt bendir til að flugvélar á vegum bandarísku leyniþjónustunnar CIA með grunaða hryðjuverkamenn innanborðs hafi millilent á Íslandi og í Danmörku, Noregi og Svíþjóð á leið sinni til ríkja þar sem pyntingar eru stundaðar. Ekki er ljóst hversu mikla vitneskju stjórnvöld í þessum löndum hafa haft um eðli flutninganna. Það eru ekki ný tíðindi að bandarísk stjórnvöld hafi um nokkurra ára skeið flutt grunaða hryðjuverkamenn til ríkja sem vitað er að beiti pyntingum við yfirheyrslur fanga, til dæmis Jórdaníu, Sýrlands og Líbíu, en slíkt brýtur í bága við sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn pyntingum. Þannig greindi bandaríska tímaritið Newsweek frá því fyrr á þessu ári að CIA hefði nokkrar flugvélar á leigu sem notaðar væru til slíkra flutninga, svonefndar draugaflugvélar. Vélarnar líta að öllu leyti út fyrir að vera ætlaðar til borgaralegra nota. Því vekja ferðir þeirra minni athygli en ella enda eru aðrar kröfur gerðar um upplýsingar um borgarlegt flug en hernaðarlegt. Talsverðar umræður hafa skapast í Danmörku um hvort slíkir flutningar hafi farið um danska lofthelgi. Í sumar spurðu þingmenn Per Stig Møller utanríkisráðherra út í málið og kom fram í svörum ráðherrans að dönsk yfirvöld hefðu látið þá skoðun sína í ljós við Bandaríkjamenn að "Danir óski ekki eftir að lofthelgi landsins sé notuð í tilgangi sem ekki samrýmist alþjóðasáttmálum." Af þessu má ráða að dönsk stjórnvöld hafi haft grun um að ekki væri allt með felldu. Í októberlok spurði svo Frank Aaen, þingmaður stjórnarandstöðunnar, Flemming Hansen samgönguráðherra í hvaða erindagjörðum flugvél á vegum flugfélags sem vitað er að CIA skiptir við hafi verið á Kastrup-flugvelli í 23 klukkustundir mars á þessu ári. Staðfest hefur verið að sú flugvél millilenti á Keflavíkurflugvelli í rúman sólarhring. Jafnframt vildi Aaen vita hvort flugvél á leið frá Reykjavík til Búdapest fyrir um þremur vikum síðan hefði farið um danska lofthelgi. Að sögn dagblaðsins Politiken sagðist ráðherrann hvorki hafa vitneskju um hverjir hefðu verið um borð né hver tilgangur ferðalagsins hefði verið. Í síðasta mánuði fjallaði norska vikuritið Nytid um ferðir slíkra véla um norska lofthelgi og er því meðal annars haldið fram að flugvöllur í Stavangri hafi verið notaður til millilendinga. Blaðið staðhæfir að árið 2001 hafi tveir menn verið teknir höndum í Svíþjóð og þeir síðan fluttir nauðugir til Egyptalands þar sem þeir sættu pyntingum. Jafnframt er greint frá því að flugvél með einkennisstafina N227SV sem CIA er sögð hafa verið með á leigu hafi farið um norska lofthelgi á leið sinni frá Möltu til Keflavíkur um miðjan desember 2004, en ekkert er vitað hverjir voru um borð. Talsmaður norska utanríkisráðuneytisins kvaðst í samtali við blaðið enga vitneskju hafa um slíkar ferðir.
Erlent Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Sigríður Björk aftur færð til Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Foksandur og rykagnir búa í þokunni Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Innlent Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Innlent „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Erlent Fleiri fréttir Ein hinsta ósk Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Sjá meira
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent