Spenna á síðustu metrunum 7. febrúar 2005 00:01
Kosið er til danska þingsins í dag. Á síðustu tveim dögunum fyrir kosningar sýndu kannanir að munurinn á milli stjórnar- og stjórnarandstöðuflokkanna hefur aðeins minnkað. Samkvæmt Gallup könnun sem birtist í Berlingske Tidende í gær myndu stjórnarflokkarnir fá 94 sæti, en stjórnarandstöðuflokkarnir myndu fá 81 eitt sæti af 179 þingsætum. Þau fjögur sæti sem eftir eru skiptast á milli færeyskra og grænlenskra þingmanna, en þar er einnig kosið í dag. Samkvæmt könnuninni myndi Venstre fá 54 þingmenn, en hafa nú 56. Jafnaðarmannaflokkurinn, sem er stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn myndi fá 49 þingmenn, en hafa nú 52. Jafnvel þó flokkurinn hafi verið að bæta við sig að undanförnu í kosningum, gæti niðustaða kosninga orðið sú versta fyrir flokkinn síðan 1973. Helstu breytingarnar, samkvæmt könnuninni er að Radikale Venstre, stjórnarandstöðuflokkur, sem hefur nú 9 þingmenn, er spáð 16 þingmönnum. Einnig er Kristilegum demókrötum ekki spáð neinum þingmanni, en hafa nú fjóra. Athygli vekur að um 20 prósent aðspurðra segjast enn óákveðnir. Það var því um mikið að keppast fyrir flokkana á síðustu dögum kosningabaráttunnar. Margir áttu von á að innflytjendamál, sem voru ofarlega á baugi fyrir síðustu kosningar, og vera danskra hermanna í Írak yrðu kosningamál nú, en svo varð ekki. Þess í stað hefur áherslan verið á atvinnumál og velferðarmál, að fjölga störfum í landinu og bæta menntun og heilsugæslu. Á sama tíma á ekki að hækka skatta. Í viðtali við fréttastofu AP segir Lars Bille, stjórnmálafræðingur við Háskólann í Kaupmannahöfn, að í þessum kosningum hafi í raun engin baráttumál komið upp. "Það var kallað til kosninga vegna þess að stjórninni vegnaði vel í skoðanakönnunum, ekki vegna þess að það hafi verið einhverjar deilur."
Erlent Fréttir Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Innlent Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Erlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Innlent Alelda bíll á Emstruleið Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Fleiri fréttir Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Geislasverð Svarthöfða til sölu Liðþjálfi skaut fimm aðra hermenn Sjá meira