Seinkun á Airbus flugi 8. ágúst 2005 00:01
Það verður seinkun á fyrsta flugi risaþotunnar A-380, sem á að taka allt að átta hundruð farþega. Ef farið verður eftir óvenjulegum öryggiskröfum bandarískra stjórnvalda verður seinkunin örugglega enn þá meiri. Til stóð að fyrstu farþegarnir fengju að kynnast þessari vél þegar á næsta ári, en þá ætlaði flugfélagið Singapore Airlines að taka nokkrar svona vélar í gagnið. Það verður seinkun á því þar sem smíðin gengur illa. Hlutar vélarinnar eru smíðaðir á nokkrum stöðum í Evrópu og svo er þeim púslað saman í Hamborg. Meðal vandamálanna er að koma hlutunum þangað, því að stór vél er saman sett úr stórum hlutum og það er meira en að segja það að flytja þá landa á milli. Kaupendur vélarinnar eru alls ekki hressir en ef Bandaríkjaþing fær vilja sínum framgengt, er hætt við meiri truflunum. Þar liggur fyrir frumvarp sem herðir öryggiskröfur fyrir farþegavélar sem geta borið átta hundruð farþega. Slíkar vélar verða að vera búnar flugskeytavara. Eina vélin sem þetta á við er auðvitað A-380 þar sem aðrar vélar taka töluvert færri farþega. Þetta þykir mörgum heldur dularfull regla og efast um að öryggishagsmunir séu ástæða hennar. Airbus og Boeing flugvélaframleiðandinn hafa löngum eldað grátt silfur saman og sakað hitt fyrirtækið um að þrífast eingöngu á niðurgreiðslum. Fréttaskýrendur segja margt benda til þess að kröfur um flugskeytavara séu í raun ekkert annað viðskiptahömlur Bandaríkjamanna, ætlaðar til að gera flugvélar Boeing að fýsilegri kosti í samanburði við risaþotuna.
Erlent Fréttir Mest lesið „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra Innlent Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum Innlent Fleiri fréttir Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Sjá meira