Erlent

Gýs í El Salvador

Eldfjallið Ilamatepec, sem er skammt frá borginni Santa Ana í vesturhluta El Salvadors, byrjaði að gjósa í nótt eftir að hafa legið í dvala í um hundrað ár. Hraun flæðir nú frá fjallinu og reykmökkur hefur náð rúmlega fimmtán kílómetra hæð. Tveir menn fórust þegar aurskriður féllu í grennd við fjallið og þúsundir manna hafa neyðst til að flýja heimili sín. Eldfjallið er í rúmlega 60 kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni San Salvador.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×