Erlent

Um sjálfsmorðsárásir að ræða

Yfirvöld á Balí á Indónesíu segja ljóst að sprengingarnar sem urðu á Kúta-strönd í gær, hafi verið sjálfsmorðssprengingar og eru tveir hryðjuverkamenn frá Malasíu grunaðir um verknaðinn. Að minnsta kosti tuttugu og sex menn létu lífið í sprengjuárásunum og um hundrað og tuttugu særðust, margir lífshættulega. Staðfest hefur verið að þrjár sprengjur hafi sprungið með stuttu millibili á kaffihúsum og á veitingastað á Kúta-strönd, en staðirnir voru fullir af fólki sem sat að snæðingi. Á annan tug fólks er saknað eftir sprengjutilræðin. Mikill viðbúnaður er nú í Jakarta, höfuðborg Indónesíu, eftir árásirnar og eru hátt í tuttugu þúsund lögreglumenn á vakt í borginni til að gæta opinberra bygginga og sendiráða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×