Erlent

Karl í kvennaflokki

Dómari í Simbabve hefur dæmt ungan mann í fjögurra ára fangelsi fyrir að villa á sér heimildir og valda félögum sínum sálartjóni. Hann keppti í frjálsum íþróttum og vann til nokkurra verðlauna fyrir land sitt - í kvennaflokki. Samukeliso Sithole, átján ára, hefur hingað til sagst vera tvíkynja, með kynfæri bæði karls og konu. Fyrir rétti kvaðst hann hins vegar vera orðinn karlmaður að öllu leyti eftir að galdralæknir bruggaði gegn honum seið í hefndarskyni. Hann baðst innilegrar afsökunar á framfæri sínu og sagðist iðrast mjög.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×