Rice hreppti hnossið 16. nóvember 2004 00:01
Condoleeza Rice tekur við af Colin Powell sem utanríkisráðherra Bandaríkjanna og er búist við opinberri yfirlýsingu þessa efnis strax í dag. Davíð Oddsson, utanríkisráðherra, hittir Powell síðar í dag. Rice hefur starfað sem þjóðaröryggisráðgjafi í ríkisstjórn Bush frá upphafi en hún er einnig náinn persónulegur vinur forsetans og starfaði fyrst í ríkisstjórn Bush eldri. Hún hallast að hinum herskárri armi ríkisstjórnarinnar en Powell var nánast sá eini í Bush stjórninni sem var í hópi hófsamra. Eitt af meginverkefnum Rice sem þjóðaröryggisráðgjafa hefur reyndar verið að reyna að stilla til friðar og ganga á milli meginandstæðinganna í Bush stjórninni; þeirra Powells og Donalds Rumsfelds, varnarmálaráðherra sem hafa verið á öndverðum meiði í nánast öllum stærstu utanríkismálum Bandaríkjanna síðustu fjögur árin. Gagnrýnendur Rice segja að henni hafi svo sem ekki farist það neitt sérstaklega vel úr hendi og hafi látið mörg vandamál óleyst. Sérsvið Rice eru kjarnorkumál og samningar um þau við Norður Kóreu og Íran og þá er hefur hún verið lykilmanneskja Bandaríkjastjórnar í friðarsamningum Ísraels og Palestínu sem reyndar hafa ekki haggast þau árin sem hún hefur verið í starfi. Hins vegar er búist við því að nú, í kjölfar andláts Arafats, muni friður fyrir botni Miðjarðarhafs, verða eitt aðalverkefni hennar. Það er erfitt að spá fyrir um það hvort þessi ráðherraskipti í Bandaríkjunum hafi einhver áhrif á samningaviðræðurnar um framtíð Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Davíð Oddsson hittir Powell um klukkan hálf sjö í kvöld en ekki búist við neinum stórtíðindum af þeim fundi, aðeins að þeir komi sér saman um nokkurs konar viðræðuáætlun. Powell hefur verið Íslendingum haukur í horni og talið er að Rice muni að sjálfsögðu virða alla þá samninga eða skuldbindingar sem Powell gengur frá, ef um slíkt verður að ræða. Að öðru leyti er hún nánast óskrifað blað hvað varðar samskipti við Íslendinga.
Erlent Fréttir Mest lesið Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Starmer segir af sér Erlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Innlent Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Innlent Fleiri fréttir Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Sjá meira